miðvikudagur, janúar 26, 2011

Norðurslóðamál

Hér eru norðurslóðir í öllu sínu veldi

þriðjudagur, janúar 25, 2011

Vangeflingar

fimmtudagur, febrúar 14, 2008

Netleikur

Jæja, nú er maður víst orðinn forfallinn netleiksspilari og farinn að þróa borg áfram á netinu. Til að þróa "borgina" Bíttá Helvítið Þitt, þá þarf að smella á einhvern af eftirfarandi hlekkjum til að þróa ákveðinn hluta borgarinnar.

Þetta er í raun sniðugur leikur, þar sem hann byggir á að aðrir taki þátt og myndi ákveðna stemningu í kringum þetta. Eins og áður segir, þá er ég orðinn forfallinn spilari og er að reyna að fá sem flesta til að kíkja við hverju sinni :-)

Endilega smellið á einhvern af hlekkjunum til þess að þróa borgina okkar í Bítta.

Þessi hlekkur eykur íbúafjölda

Þessi hlekkur þróar iðnað í borginni

Þessi hlekkur lagar samgöngumálin.

Svo er Garðar Valur einnig kominn með borg, og er slóðin á hana hér

Borgin hans Gazza


Um að gera að vera dugleg og smella á hlekkina :-) Þegar maður er að spila á annað borð, þá á maður að spila til þess að vinna !

miðvikudagur, janúar 30, 2008

Borgin Bíttu á helvítið þitt

Nú er maður víst í smá netleik, þannig að ég vil biðja fólk að smella á þennan hlekk sem er hér fyrir neðan. Hver heimsókn á vefinn þróar borgina örlítið í einu.


hér er Bíttá borgin

mánudagur, janúar 14, 2008

Flott myndband

Skúli nokkur Magnússon benti mér á eitt stórsniðugt myndband á Youtube sem öllum ætti að vera hollt að horfa á.

Ef mér skjátlast ekki, þá á lagið að vera uppbyggt með þeim hljóðum sem við "sjáum" í myndbandinu.

Vonandi vekur þetta upp einhverjar tilfinningar sem leiðir til Þess að við förum að ganga betur um heiminn.

miðvikudagur, október 10, 2007

Aðalmaðurinn er kominn á Internetið

Í tilefni af því að stóri bróðir sé kominn með heimasíðu, þá langar mig endilega að benda lesendum á hana og hvetja þá til að líta inn og skoða herlegheitin.

Á síðunni er meðal annars að finna myndir af skipum og togurum en það er eitt helsta áhugmál bróður míns, en hann er svokallað skipanörd. Einnig er að finna fjölskyldu myndir og ég býst við því að félaginn setji inn drykkjumyndir síðar meir. Einnig er þar að finna myndir af Sunnuhlíðar flotanum en sú útgerð er í miklum blóma, svo miklum að búast má við kvóta árið 2011.

Nú er bara málið að skoða og forvitnast um líf Brynjars Arnarssonar, skipanörds, áhuga trillukarls, sjómanns og föðurs.

Hér er síðan: www.123.is/binni


Hér sjást bræðurnir Sigmar og Brynjar á góðri stundu á Laxa II sem er minni báturinn í Sunnuhlíðarflotanum.

mánudagur, september 03, 2007

Skólinn er víst að byrja aftur

Það er alveg merkilegt hvað maður er latur að byrja aftur í skólanum... Kannski er þetta samt bara þynnkan sem situr í mér ennþá frá því um helgina.

Annars er allt gott að frétta, við skötuhjúin erum flutt í nýtt húsnæði ásamt tveim systrum Evu auk eins ungabarns (og þá á ég ekki við um sjálfan mig).

Svo er það veiðin, hún gengur alveg sæmilega, bæði á stöng og svo byssu. Gaman af því

sunnudagur, maí 06, 2007

Smá skemmtilegheit

Mig langar að kynna ykkur fyrir nýrri cover hljómsveit, New Wheels On The Block. Þetta er bara algjör snilld.


Það er alltaf gaman þegar maður sér fólk sem er ekki alveg samkeppnishæft gagnvart öðru fólki vera gera smá grín af sjálfu sér.

laugardagur, maí 05, 2007

Deyfð

Þrátt fyrir smá fréttadeyfð á þessari síðu, þá þýðir það ekki að maður sé dauður úr öllum æðum. Allt fjörið virðist vera á heimasíðu Bíttá Helvítið þitt þessa stundina.

Heimasíða veiðifélagssin
Bíttá helvítið þitt er veiðifélag fátæka mannsins

föstudagur, apríl 20, 2007

Gleðilegt sumar

Við Eva klikkuðum ekki á því að halda upp á sumardaginn fyrsta með því að þræða milli húsa í leit af kaffisopa.

Við enduðum í pönnsukaffi heima hjá ömmu, ásamt Binna og fjölskyldu. Ég verð bara segja að ömmu pönnsurnar eru alveg rosalega góðar, svo lengi sem maður nær að halda hemil á þeirri gömlu með sykurkarið.

En allavegana, til hamingju með sumarið, það var kominn tími á það, jafnvel þó svo að hitinn nái ekki tveggja stafa tölu í plús og það skuli snjóa úti í augnablikinu.


Það er ekki annað að sjá að þessar tvær ungu dömur séu komnar í sumarskap. Það er ekki seinna vænna þar sem sumardagurinn fyrsti var í gær.